Frábær Brunello!

piccini villa al cortileÁ síðasta Vínklúbbsfundi smökkuðum við Piccini Villa al Cortile Brunello di Montalcino 2009, sem vakti mikla hrifningu klúbbfélaga.  Vínið sýnir góðan þroska, ryðrautt á lit með góða dýpt.  Í nefið koma sæt kirsuber, döðlur, jarðarber, kaffi, dökkt súkkulaði, skógarbotn og smá útihús.  Í munni er töluvert af tannínum en góð sýra á móti, góð fylling og frábært jafnvægi.  Góður kirsuberjakeimur í eftirbragðinu sem helst mjög lengi.  Flauelsmjúkt og margslungið vín, sem fær 95 stig – frábært vín!
Einkunn:

Vínsíðan

Vinir á Facebook