Kominn í frí!

Já, nú er ég kominn í vikulangt frí sem er kærkomið eftir útlegð undanfarinna vikna.  Ég hélt upp á fríið með því að grilla nautalund og bjó til bernaise-sósu (engin pakkasósa heldur alveg frá grunni).  Með þessu drukkum við Antinori Badia A Passignano Chianti Classico 2005.  Ég keypti þetta vín í fríhöfninni og það kostaði um 3.000 krónur.  Þetta er fallega rautt vín, enn nokkuð unglegt að sjá en með þokkalega dýpt.  Í nefið fær maður góðan súkkulaði og ávaxtakeim (kirsuber og plómur), smá leður, pipar og auðvitað eik.  Í munni er vínið í góðu jafnvægi, tannínin aðeins farin að mýkjast, fyllingin góð og eftirbragðið langt og þétt.  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup! Vínið féll mjög vel með nautalundinni og ég á örugglega eftir að kaupa þetta aftur!

Vinir á Facebook