Viña Tondonia Reserva 2007

Víngerð í gamla heiminum hefur lengi verið mjög íhaldssöm, einkum í rótgrónustu héruðum Frakklands og Spánar. Neytendur hafa því í gegnum tíðina þurft að geyma vínin sín í nokkur ár svo að þau séu í sem bestu formi þegar þeirra er neytt. Þessi þolinmæði neytenda hefur þó heldur minnkað í seinni tíð og sífellt fleiri sem vilja að vínin séu tilbúin til neyslu þegar þau eru keypt. Til að mæta þessum breyttu væntingum neytenda hafa margir vínframleiðendur breytt um áherslur í sinni víngerð, og á það m.a. við um marga vínbændur í Rioja. Þetta verður þó ekki sagt um vínhús R. López de Heredia.

Vínhús R. López de Heredia er á meðal elstu vínhúsa í Rioja, og byggingin sem hýsir víngerðina er frá árinu 1877. Líkt og gildir um alvöru stórbyggingar á Spáni þá er byggingarferlinu hvergi nærri lokið. Í dag telja fermetrarnir rúmlega 53 þúsund þegar kjallarrýmið er talið með, en þar eru á hverjum tíma um 13.000 tunnur í geymslu.

Viña Tondonia var stofnað árið 1913 og hefur með tímanum orðið flaggskip López de Heredia. Vínekrur Viña Tondonia ná yfir um 100 hektara meðfram ánni Ebro við bæinn Haro í hjarta RIoja. Þrúgurnar af þessum vínekrum fara í vín Viña Tondonia, en aðeins í bestu árgöngum er Gran Reserva búið til. Í Viña Tondonia eru menn sannfærðir um ágæti þess að láta vínin þroskast á tunnum, og því til sönnunar má benda á að auk þessa að búa til hefðbundið Reserva og Gran Reserva rauðvín, þá eru einnig gerð Reserva og Gran Reserva hvítvín og Gran Reserva rósavín. Vínin frá Viña Tondonia fá hins vegar að liggja mun lengur á tunnu en gengur og gerist, og geymslutíminn er oftast nálægt leyfilegum hámarkstíma. Þannig hefur Gran Reserva rauðvínið fengið að liggja í 10 ár á tunnum (lágmarkið fyrir Gran Reserva eru 3 ár). Nýjasta Gran Reserva sem hægt er að nálgast er frá árinu 1995, en von er á 2001-árgangnum í verslanir á næsta ári.

Vín dagsins

Hjá flestum öðrum vínhúsum myndi vín dagsins vera flokkað sem Gran Reserva, a.m.k. ef horft er á geymslutíma vínsins. Þetta vín er gert úr þrúgunum Tempranillo (75%), Garnacha (15%), Graciano og Mazuelo (10%). Vínið fékk að liggja í 6 ár á eikartunnum áður en það var sett á flöskur.

Viña Tondonia Reserva 2007 er fallega rúbínrautt í glasi, með ágætan þroska og góða dýpt. Í nefinu eru þroskuð kirsuber, vanilla, appelsínubörkur, skógarber, tóbak og krydd. Í munni eru mjúk tannín, góð sýra og þægileg fylling. Fágaðir eikartónar, súkkulaði, tóbak og rauð ber í þéttu og góðu eftirbragðinu sem heldur sér vel. Fer vel með nautalund og lambakjöti. Frábært vín. 95 stig. Einn af betri spánverjum sem ég hef smakkað.

Robert Parker gefur þessu víni 96 stig en Wine Spectator aðeins 87 stig. Notendur vivino.com gefa þessu víni 4.1 stjörnur (3.809 umsagnir þegar þetta er skrifað).

Viña Tondonia Reserva 2007
Viña Tondonia Reserva 2007 er fágað og flott vín sem fer vel með nautalundinni og íslenska lambinu. Frábært vín.
5
95 stig

Vinir á Facebook