Gyllta glasið 2016

Nú er nýlokin keppnin um Gyllta Glasið 2016 sem var haldin í 12. sinn undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands.
Í ár var verðflokkur vína í keppni frá 2.490 kr. til 3.500 kr, sá sami og var 2015 að viðbætum rósavínsflokki og var ekkert verðþak þar, vínin máttu koma frá öllum heiminum og völdu vínbirgjar vínin sem þeir lögðu til í þessa keppni.
Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Hótel Hilton Nordica sunnudaginn 29 maí. Þáttakan í Gyllta glasinu í ár var góð viðað við verðflokkinn, en alls skiluðu sér 99 vín til leiks frá 13 vínbirgjum.
Í ár var dómarapanelinn skreyttur með þekktum vínsérfræðingum, vínbirgjum, reyndum vínáhugamönnum innan veitingariðnaðarins og kunna Vínþjónasamtökin þeim bestu þakkir fyrir þáttökuna í þetta mjög svo krefjandi verkefni.
Alls voru það 20 manns sem blindsmökkuðu og dæmdu vínin samkvæmt Parker skala.  Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna ásamt sérstakri aðstoð frá Peter Hansen og Ástþóri Sigurvinssyni, en Hilton Reykjavík Nordica útvegaði fyrsta flokks aðstöðu og þjónustu með frábærum veitingum.
7 hvítvín, 13 rauðvín og 3 rósavínurðu svo fyrir valinu og hlutu Gyllta glasið 2016. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.

Verðlaunavín Gyllta Glasið 2016

Hvítvín

  • Villa Maria Private Bin Sauvignon Blanc 2015 (2.950 kr)
  • Peter Jakob Khün Jacobus Riesling Trocken 2015 (3.498 kr)
  • Villa Maria Private Bin Riesling 2015 (2.730 kr)
  • Willm Pinot Gris Reserve 2015 (2.699 kr)
  • Arthur Metz Pinot Gris 2015 (2.499 kr)
  • Dopff & Irion Cuvée René Dopff Gewurztraminer 2013 (2.590 kr)
  • Montes Alpha Chardonnay 2014 (2.999 kr)

Rauðvín

  • Allegrini Palazzo della Torre Ripasso 2012 (2.990 kr)
  • Tommasi Ripasso 2014 (3.399 kr)
  • Tenuta Sant’Antonio Monti Garbi Ripasso 2014 (2.999 kr)
  • Concha Y Toro Marques de Casa Concha Cabernet Sauvignon 2014 (2.999 kr)
  • Peter Lehmann Portrait Shiraz 2013 (2.599 kr)
  • George Wyndham Bin 555 Shiraz, 2013 (2.499 kr)
  • Trivento Golden Reserve Syrah 2013 (2.999 kr)
  • Prunotto Barbera d’Alba 2014 (2.599 kr)
  • Torres Gran Coronas Reserva 2012 (2.890 kr)
  • Montecillo Reserva 2010  (2.599 kr)
  • Cune Reserva 2011 (2.999 kr)
  • Coto de Imaz Gran Reserva 2010 (3.299 kr)
  • Torres Celeste 2013 (2.980 kr)

Rósavín

  • Gérard Bertrand Côte des Roses 2015 (2.599 kr)
  • Domaine du Tariquet Rosé du Presse 2015 (2.190 kr)
  • Miguel Torres Santa Digna Rosé 2015 (2.290 kr)

Vinir á Facebook