Vín ársins hjá Wine Spectator

Á hverju ári tilnefnir tímaritið Wine Spectator vín ársins og nú liggur fyrir hvaða vín varð fyrir valinu.  Að þessu sinni er það vín frá Kaliforníu sem hlýtur heiðurinn, og líkt og áður eru skiptar skoðanir meðal lesenda.  Það sem ræður valinu hverju sinni er blanda af verði, gæðum og svokölluðum X-faktor, þ.e. eitthvað óskilgreint sem gerir vínið spennandi og eftirsóknarvert.  Vín ársins, Peter Michael Cabernet Sauvignon Oakville Au Paradis 2012, hlaut 96 stig í einkunn og alls voru framleiddir 1,785 kassar af víninu, og er flaskan seld á $195 í Bandaríkjunum.  Gagnrýnin beinist líkt og áður einkum að því að enn og aftur er valið nokkuð dýrt vín sem er framleitt í takmörkuðu magni og því líklega aðeins fáir útvaldir sem fá að njóta þess.  Vín ársins selst að jafnaði upp skömmu eftir að tilkynnt er um valið, og þegar valið er vín sem er dýrt og aðeins til í litlu magni, þá er ólíklegt að venjulegir vínáhugamenn nái að verða sér úti um flösku af þessu eftirsótta víni.
Vínið í 4. sæti er athyglisvert fyrir okkur íslendinga, en þetta vín (þ.e. fyrri árgangar) hefur verið fáanlegt í vínbúðum ÁTVR.  Núna er 2009-árgangurinn í hillunum, en vonandi kemur 2010 fljótlega í hillurnar.  Það er þó viðbúið að þurfi að panta vínið, því líklega hverfur það fljótt úr hillunum.
Hér er annars listinn yfir 10 efstu vínin, en listinn yfir 100 efstu vínin verður svo birtur yfir helgi.
 

         LabelCrop55105 # 1

Peter Michael
Cabernet Sauvignon Oakville Au Paradis 2012
LabelCrop21286 # 2

Quilceda Creek
Cabernet Sauvignon Columbia Valley 2012
LabelCrop43397 # 3

Evening Land
Pinot Noir Eola-Amity Hills Seven Springs Vineyard La Source 2012
LabelCrop19436 # 4

Il Poggione
Brunello di Montalcino 2010
LabelCrop35564 # 5

Mount Eden Vineyards
Chardonnay Santa Cruz Mountains 2012
LabelCrop77680 # 6

Bodegas Aalto
Ribera del Duero 2012
LabelCrop95755 # 7

Escarpment
Pinot Noir Martinborough Kupe Single Vineyard 2013
LabelCrop11807 # 8

Masi
Amarone della Valpolicella Classico Serègo Alighieri Vaio Armaron 2008
LabelCrop78968 # 9

Clos Fourtet
St.-Emilion 2012
LabelCrop68054 # 10

Klein Constantia
Vin de Constance 2009

Vinir á Facebook