Þegar rætt er um Rhône-dalinn beinist athyglin oftast að rauðvínunum. Það er skiljanlegt – svæðið hefur um aldir byggt upp orðspor sitt á kraftmiklum og krydduðum rauðvínum úr GSM-blöndunni frægu – Grenache, Syrah og Mourvèdre. Í skugga þeirra leynast þó önnur vín sem fá mun minni umfjöllun en þau eiga skilið, nefnilega hvítvín frá Rhône. Þar má finna fjölbreytt og áhugaverð vín sem sameina ferskleika, ilmauðgi og þann sólríka karakter sem einkennir suðurhluta Frakklands.
Rhône-dalurinn er eitt fjölbreyttasta vínhérað Frakklands. Í suðurhlutanum, þar sem loftslagið er hlýtt og sólríkt, eru hvítvín gjarnan framleidd úr blöndu nokkurra þrúgutegunda. Meðal þeirra mikilvægustu eru Grenache Blanc, Viognier, Roussanne, Marsanne, Clairette og Bourboulenc. Hver þeirra leggur sitt af mörkum til lokaútkomunnar; sumar færa víninu ilm og ávaxtaríkan karakter, aðrar byggingu, sýru eða kryddaða dýpt.
Hvítvín frá Côtes-du-Rhône eru oft vanmetin þegar kemur að verðgæðum. Á meðan margir vínunnendur leita að hvítvínium frá Bourgogne eða frá Loire-dalnum, þá er hægt að finna einstaklega áhugaverð Rhône-vín á mun hagstæðara verði. Bestu vínin sameina þroskaðan ávöxt, ilm af hvítum blómum, steinávöxtum og sítrusávöxtum ásamt kryddjurtunum sem svo margir tengja við suðurhluta Frakklands.
Vín dagsins
Eitt af þeim vínhúsum sem hafa um langt skeið staðið framarlega í flokki á þessu sviði er Château Mont-Redon. Vínhúsið er staðsett í hjarta Châteauneuf-du-Pape og hefur verið í eigu Abeille-Fabre fjölskyldunnar í fjölmargar kynslóðir. Þótt Mont-Redon sé hvað þekktast fyrir rauðvín sín hefur húsið einnig langa og mikla reynslu af gerð hvítvína.

Côtes-du-Rhône Reserve Blanc frá Château Mont-Redon er gott dæmi um þessa hefð. Vínið sýnir vel hvernig hvít Rhône-vín geta verið bæði aðgengileg og flókin í senn. Hér er ekki sóst eftir öfgum heldur jafnvægi – safaríkur ávöxtur, ferskleiki og hófstillt fylling mynda heild sem gerir vínið jafn áhugavert eitt og sér og með mat. Þó svo að þrúgurnar sem fara í vínin frá Mont-Redon komi flestar af þeirra eigin vínekrum þá kaupir vínhúsið einnig þrúgur frá öðrum vínbændum og það á m.a. við um þrúgurnar sem fara í vín dagsins.
Château Mont-Redon Côtes-du-Rhone Reserve Blanc 2025 er gert úr þrúgunum Viognier (89%), Grenache blanc (7%) og Roussanne (4%). Vínið er fölgult, með frísklega angan af sítrusávöxtum, hunangi, eplum, ferskjum og möndlum. Í munni er vín þurrt, með góða sýru, létta fyllingu og gott jafnvægi. Eftirbragðið heldur sér vel og þar má finna sítrusávexti, epli, ferskjur, möndlur, smá hungang, ananas, steinefni og seltu. 89 stig. Fer vel með ljósu fuglakjöti, feitum fiski, svínakjöti og ostum.
Jancis Robinson gefur þessu víni 15.5/20 (mótsvarar 87 stigum). Aðeins 13 umsagnir er að finna á Vivino þegar þetta er skrifað (of fáar til að gefa meðaleinkunn). James Suckling gaf 2024-árgangnum 92 stig.


