Kjarakaup

Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni þá hefur Chenin Blanc frá hinum Suður-Afríska Drostdy-Hof verið vinsælt hjá okkur, einkum að sumarlagi þar sem tilvalið er að fá sér eitt hvítvínsglas á meðan grillað er.  Yfirleitt keypti ég þetta vín í belju en það er einnig að hægt að fá það í flösku.
Drostdy-Hof Chenin Blanc 2016 er strágult með fölgrænni slikju, með angan af melónum, ferskjum, sítrus og grænum eplum.  Í munni er góð sýra, frísklegt bragð, vínið er aðeins kryddað og er með ágæta fyllingu.  Góð kaup (kostar aðeins 1.449 kr). 87 stig.

Vínsíðan

Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]

Vinir á Facebook