Rauðvín frá Alentejo

Héraðið Alentejo í suðurhluta Portúgal hefur löngum verið þekkt fyrir korkinn sem þar vex og er meðal annars notaður í korktappa.  Í seinni tíð hefur héraðið einnig verið að komast á kortið fyrir léttvínin sín.  Í hillum vínbúðanna má finna tvö rauðvín frá Alentejo.  Annað þeirra er Cortes de Cima, sem gert er úr þrúgunum Syrah, Aragonez (Tempranillo), Petit Verdot og Touriga Nacional.
09177_rCortes de Cima 2012 er kirsuberjarautt á lit, unglegt.  Í nefinu finnur maður svartan pipar, bláber, negul, vanillu og eik.  Í munni kemur dálítið súr hratkeimur, mikið berjabragð með ágætri fyllingu, en eftirbragðið er aðeins snubbótt.  Hentar vel með rauðu kjöti, einkum grilluðu. Kannski aðeins í dýrari kantinum miðað við gæði (2.749 kr í Vínbúðunum).

Vínsíðan

Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]

Vinir á Facebook