Fimm stjörnu vín!

Það er ekki á hverjum degi að vín fær hæstu einkunn hjá mér og yfirleitt eru þau teljandi á fingrum annarrar handar þau vín sem fá hæstu einkunn á ári hverju.  Ég hef á undanförnum vikum fjallað um nokkur vín frá Perelada í Katalóníu á Spáni og þetta vín er tvímælalaust það besta sem ég hef smakkað frá þeim framleiðanda og eitt það besta sem ég hef smakkað á þessu ári.  Vínið er frá héraðinu Emporda í Katalóníu og er einnar ekru vín, þ.e. þrúgurnar koma allar af sömu vínekrunni, sem nefnist La Garrica.  Vín er gert úr þrúgunni Samsó, sem er katalónska heitið á þrúgunni Carignan.  Það er látið liggja í 19 mánuði á nýjum Bordeaux-tunnum (225 lítra tunnur) úr amerískri eik áður en það fer svo á flöskur.
Perelada Finca La GarrigaPerelada Finca La Garrica 2011 er djúprautt á lit, unglegt að sjá.  Í nefinu finnur maður leður, lakkrís, ameríska eik, blek og dökk kirsuber, smá balsamedik og pipar.  Í munni er góð tannín og sýra, mjög gott jafnvægi og mikil fylling.  Lakkrísinn og kirsuberin koma vel fram í bragðinu og í eftirbragðinu finnur maður dökkt súkkulaði og vanillutóna.  Vín fyrir stórar steikur. Frábær kaup (4.390 kr).

Vínsíðan

Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]

Vinir á Facebook