Mmmm… "M"

Í gær langaði okkur í góðan mat og gott vín.  Við buðum því Keizaranum og fjölskyldu hans í mat – Roastbeef með þreföldum piparhjúp og timjan ásamt rösti-kartöflum og skógarsveppasósu.  Algjört lostæti og með því þurfti auðvitað gott vín!  Fyrir valinu varð Montes Alpha „M“ 2004. Vínið er frá Colchagua í Chile og er blanda Cabernet Sauvignon (80 %), Merlot (10 %), Cabernet Franc (5%) og Petit Verdot (5 %).  Mjög dökkt vín með mikla dýpt.  Enn sem komið er nokkuð lokuð lykt – leður og eik, smá ávöxtur en ekki mikið meira.  Í munni ákaflega mjúkt með mjög góða fyllingu, mikil tannín en samt með silkiáferð – frábært jafnvægi.  Springur út í munninum með ögn af eik og dökku súkkulaði.  Langt og gott eftirbragð.  Frábært vín sem hægt er að njóta núna eða geyma í nokkur ár til viðbótar (spjarar sig eflaust ágætlega í 10-15 ár!).

Vinir á Facebook