Cantine Maschio Prosecco Treviso Extra Dry

Prosecco hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér enda gerir maður yfirleitt góð kaup í þeim.  Það sama á við um vínið sem hér um ræðir, sem kemur frá Treviso (allt prosecco kemur frá Norður-Ítalíu).
Maschio proseccoCantine Maschio Prosecco Treviso Extra Dry er fölgult á lit, freyðir vel í glasi.  Í nefinu finnur maður kolsýru, greipaldin og perur.  Í munni er góð kolsýra, tónar af greipaldin, perum og maður finnur líka smá hunangsmelónu í lokin.  Góður fordrykkur, gengur með salati og léttum fiskréttum.  Mjög góð kaup (1.798 kr).

Vínsíðan

Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]

Vinir á Facebook