Perelada sec cava

Eins og áður hefur komið fram þá koma flest Cava-vín frá Katalóníu á Spáni, og það gildir einnig um vínið sem hér um ræðir, sem kemur frá hinum ágæta framleiðanda Castello Perelada, sem er staðsett í héraðinu Emporda í norður-Katalíníu.  Þetta vín er gert úr þrúgunum Macabeu, Xarel-lo og Parellada.
perelada cava secPerelada sec cava er fallega fölgult á lit, með angan af sítrusberki, gulum eplum og blómum.  Í munni freyðir það vel, ágæt fylling, sítrus og eplakeimur, örlítil beiskja í lokin.
1.870 krónur – góð kaup.

Vínsíðan

Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]

Vinir á Facebook