Ramón Bilbao Rioja  Crianza 2012

Crianza2012_PackshotAllt frá því að ég bjó í Svíþjóð hef ég haft auga á vínunum frá Ramón Bilbao í Rioja.  Þessi vín hafa almennt fengið ágæta dóma og verið tilgreind sem Smart Buy og Best Value í Wine Spectator, og ekki spillir fyrir að verðið hefur verið mjög gott.  Nú styttist í að þessi vín komist í hillur vínbúðanna og er það fagnaðarefni, að mínu mati.

Ramón Bilbao Rioja Crianza 2012 er rúbínrautt á lit, unglegt.   Í nefinu ilumur af fjólum, plómum, smá leðri, einnig kirsuber og brómber.  Í munni koma nokkuð hörð tannín, sýran aðeins áberandi, kryddað, örlítill anískeimur, súkkulaði.   Þessi árgangur í Rioja er ekki alveg jafn sterkur og undanfarin 4-5 árin áður, en þetta vín vakti engu að síður hrifningu hjá mér og þeim sem það smökkuðu. Prýðilegt matarvín.

Vínsíðan

Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]

Vinir á Facebook