Gyllta glasið 2015

Gyllta glasið 2015Nýlega fór fram keppnin um Gyllta Glasið 2015, sem var haldin í 11. sinn undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Í ár var verðflokkur vína í keppni frá 2.490 kr. til 3.500 kr, sá sami og var 2014, og máttu vínin koma frá öllum heiminum og völdu vínbirgjar vínin sem þeir lögðu til í þessa keppni.

Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin skipa. Mér hlotnaðist sá heiður í fyrsta sinn að sitja í þessari dómnefnd, og það var ákaflega skemmtileg, en krefjandi.  Það er nefnilega hægara sagt en gert að smakka rúmlega 60 vín á 2 tímum, og bragðlaukarnir mínir voru orðnir lúnir undir lokin.  Ég náði aðeins að taka þátt í seinni hluta smökknarinnar, en í fyrri hlutanum var svipaður fjöldi vína prófaður.
AIMG_2519lls voru það 24 manns sem blindsmökkuðu og dæmdu vínin samkvæmt Parker skala. Yfirdómari var Alba E H Hough, margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna. Smökkunin fór fram á Hilton Reykjavík Nordica, sem útvegaði fyrsta flokks aðstöðu og þjónustu með frábærum veitingum.
Þáttakan í Gyllta glasinu í ár var frábær viðað við verðflokkinn, en alls skiluðu sér 119 vín til leiks frá 13 vínbirgjum.
10 hvítvín og 10 rauðvín urðu svo fyrir valinu og hlutu Gyllta glasið 2015. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.
Eftirtalin vín hlutu Gyllta Glasið árið 2015:

Hvítvín
Bramito del Cervo Chardonnay 2014 (2.799 kr)
Tariquet Réserve 2013 (2.590 kr)
Willm Gewurztraminer Reserve 2013 (2.999 kr)
Willm Riesling Reserve 2013 (2.699 kr)
Terrunyo Sauvignon Blanc 2009 (3.099 kr)
Envoy Chardonnay 2011 (2.758 kr)
Jean Leon 3055 Organic Chardonnay 2014 (2.790 kr)
Jacobus Riesling Trocken 2013 (2.965 kr)
Domaine Tabordet Pouilly Fume 2013  (2.965 kr)
Vicar’s Choice Riesling 2012 (2.499 kr)
Rauðvín
Domaine de Villemajou Corbieres Boutenac 2013 (3.199 kr)
Château La Sauvageonne Cuvée Pica Broca 2013 (2.969 kr)
Marques de Casa Concha Cabernet Sauvignon 2013  (2.999 kr)
Nederburg Manor House Cabernet Sauvignon 2012 (2.599 kr)
Morandé Gran Reserva Merlot 2011 (2.767 kr)
Marques de Casa Concha Merlot 2012 (2.999 kr)
Coto de Imaz Gran Reserva 2005 (3.499 kr)
Bodegas Montecillo Viña Monty Reserva 2009 (2.998 kr)
Pujol Côtes du Roussillon Fûts de Chêne 2012 (2.790 kr)
Marques de Caceres Reserva 2009 (3.292 kr)
Bestu þakkir til Vínþjónasamtakanna fyrir að standa að þessari veglegu keppni, sem og til allra birgja sem sendu inn vín í keppnina.

Vinir á Facebook