Spennandi Aglianico

Vín dagsins kemur frá héraðinu Basilicata, sem er syðst á ítalíu.  Þrúgan í víninu kallast Aglianico og er upphaflega talin komin frá Grikklandi.  Hún var uppistaðan í Falerniu-vínum sem voru mjög eftirsótt á tímum Rómverja.  Þrúgan vill helst vera í sól og sumaryl og nýtur sín best syðst á Ítalíu og í Ástralíu, Texas og Kaliforníu.

Nativ Aglianico Irpinia 2015 er kirsuberjarautt á lit og unglegt að  sjá.  Í nefi finnur maður kirsuber, plómur, leður og pipar.  Í munni eru stinn tannin, góð sýra og flottur ávöxtur. Svört kirsuber, súkkulaði og hrat ráðandi í eftirbragðinu.  Góð kaup (2.790 kr).  Drekkist á næstu 2-3 árum með nautakjöti, grillmat, ostum og léttari villibráð.  88 stig.

Vinir á Facebook