Bodegas Roda Sela 2023

Bodegas Roda, sem er staðsett í hjarta Rioja á Spáni, hefur unnið sér sess sem eitt af fremstu vínhúsum Rioja. Bodegas Roda var stofnað árið 1987 af Mario Rotllant og Carmen Daurella.   Roda hefur frá upphafi lagt megináherslu á nýsköpun, gæði og sjálfbærni í sinni framleiðslu. Upphaflega var Roda eingöngu með vínekrur í Rioja, en með tímanum hefur Roda haslað sér völl í Ribera del Duero. 

Bodegas Roda býður upp á tvær aðal línur af vínum: Roda og Roda I, sem bæði eru framleidd úr Tempranillo þrúgunni með mismunandi hlutföllum af Graciano og Garnacha. Yngsta vínið frá Roda nefnist Sela, gert úr sömu þrúgum en fær styttri þroskun en hin vínin og gæti flokkast sem Crianza. Flaggskipið er svo Cirsion, úrvals vín sem er aðeins framleitt á bestu árum. Sérstakt teymi starfsmanna kembir þá vínekrur Roda og velur þær plöntur sem gefa af sér þrúgurnar í Cirsion. Vínviðurinn verður að vera orðinn a.m.k. 40 ára og afköst hverrar plöntu mega ekki vera of mikil. Öll vín frá Roda eru látin þroskast í frönskum eikartunnum (flest vínhús í Rioja nota amerískar eikartunnur, einkum fyrir yngri vin).

Sjálfbærni er einnig lykilatriði hjá Bodegas Roda. Þeir hafa innleitt umhverfisvæn vinnubrögð, svo sem lágmarks notkun á varnarefnum og efnaáburði í öllu framleiðsluferlinu, og nýta endurnýjanlega orkugjafa í framleiðslunni. Þetta er til marks um skuldbindingu þeirra til að varðveita náttúruauðlindir og stuðla að sjálfbærri framtíð fyrir næstu kynslóðir.

Vín dagsins

Mario Rotllant, eigandi Roda, er mikill Íslandsvinur og hefur margoft komið til Íslands, m.a. til laxveiða.   Ég var svo heppinn að hitta Mario fyrir nokkrum árum þegar hann kynnti vín Roda og Corimbo (vínhúsið í Ribera del Duero), og hef einnig heimsótt vínhús Roda í Rioja.  Flestum vínáhugamönnum er eflaust kunnugt um að vínið Sela er einmitt nefnt eftir ánni Selá í Vopnafirði, sem er ein af uppáhaldsám Mario.

Bodegas Roda Sela 2023 er gert úr þrúgunum Tempranillo (89%), Graciano (4%) og Garnacha (7%). Vínið er látið gerjast í stórum eikarámum og síðan er það látið hvíla í 12 mánuði í frönskum eikartunnum sem hafa verið notaðar einu sinni áður. Vínið hefur miðlungsdjúpan rúbínrauðan lit. Í nefinu er nokkuð þéttur ilmur af rauðum kirsuberjum, plómum, brómberjum, vanillu, eik, tóbaki, kanil, sedrusvið og kaffi. Í munni er vínið þurrt, með ríflega miðlungs sýru, góð tannín og góða fyllingu. Vínið er í góðu jafnvægi og í eftirbragðinu, sem heldur sér nokkuð lengi, má finna kirsuber, plómur, brómber, vanillu, eik, tóbak, kanil og kaffi. 91 stig. Mjög góð kaup (4.490 kr). Fer einkar vel með lambi en passar líka ljómandi vel með nauti og fuglakjöti. Vínið er tilbúið til neyslu nú en þolir eflaust 7-10 ára geymslu til viðbótar.

James Suckling gefur þessu víni 91 stig. Notendur Vivino gefa þessu víni 3,9 stjörnur (216 umsagnir þegar þetta er skrifað).

Bodegas Roda Sela 2023
Mjög góð kaup
Bodegas Roda Sela 2023 fer einkar vel með lambi en passar líka ljómandi vel með nauti og fuglakjöti.
4
91 stig
Hvar fæst vínið?

Vinir á Facebook