Þrúgan Xarel·lo er ein mest ræktaða þrúgan í Katalóníu, enda burðarás í Cava freyðivínum ásamt Macabeo og Parellada. Xarel·lo hefur hins vegar ekki verið mjög áberandi ein og sér, þó það sé aðeins að breytast. Sífellt fleiri víngerðarmenn eru farnir að gera vín úr staðbundnum, spænskum þrúgum á borð við Xarel·lo, Sumoll og Montònega. Einn þeirra er Pepe Raventós, sem einnig stjórnar víngerðinni hjá vínhúsi Raventós i Blanc.
Raventós-fjölskyldan hefur stundað víngerð í meira en 500 ár, lengst af undir merkjum Codorniu sem flestir vínáhugamenn kannast við. Vínhúsið öðlaðist frægð á Spáni (og víðar) þegar Josep Raventós I Fatjó varð fyrstur spánverja til að búa til freyðivín árið 1872. Nafnið Raventós i Blanc er þó tiltölulega nýlegt og kemur með Josep Raventós i Blanc sem stofnaði vínhúsið árið 1986. Josep þessi var í 40 ár stjórnandi hjá vínhúsi Codorniu og einn af frumkvöðlum þess að víngerðarsvæðið Cava DO varð formlega til. Josep lést þó aðeins nokkrum dögum eftir að Raventós i Blanc varð til og Manuel sonur hans tók þá við keflinu. Í dag er það Pepé Raventós sem stjórnar víngerðinni, en hann er 21. kynslóð víngerðarmanna í Raventós-fjölskyldunni.
Þó að Josep Raventós i Blanc hafi verið einn af frumkvöðlum Cava DO þá ákvað Pepé að yfirgefa Cava DO. Árið 2012 stofnuðu þeir hið óformlega Conca del Riu Anoia sem þeir vilja að verði sérstakt DO. Pepé og fleiri víngerðarmenn voru ósáttir við margt innan Cava DO – svæðið var illa skilgreint og bauð ekki upp á að betri svæði fengju viðurkenningu á sérstöðu sinni. Stjórnendur Cava DO reyndu að lappa upp á reglurnar en fleiri víngerðarmönnum fannst að stóru vínhúsin væru of áhrifamikil og reglurnar lagaðar að þeirra óskum. Fleiri vínhús fylgdu í kjölfar Raventos i Blanc og yfirgáfu Cava DO, þar á meðal margir af bestu Cava-framleiðendunum. Þeir hófu að kenna vínin sín við Corpinnat og gera kröfu um a.m.k. 18 mánaða þroskatíma, að framleiðslan sé lífræn eða biodynamísk, og að þrúgurnar séu tíndar af vínviðnum með handafli. Nafnið Corpinnat má þýða sem “ fætt í hjarta Penedès“, en það nær yfir tæplega 1000 ferkílómetra svæði í Penedès.
Vín dagsins
Vín dagsins kemur frá áðurnefndu vínhúsi Raventós i Blanc, nánar tiltekið „gæluverkefni“ Pépe Raventós sem kallast Can Sumol. Vínekrurnar eru í fjallahéruðum Penedès, þær hæstu í allt að 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Framleiðslan er öll lífræn og súlfíðnotkun er haldið í lágmarki. Þarna eru ræktaðar katalónskar þrúgur á borð við Xarel·lo, Sumoll og Montònega, auk Garnatxa negro og Garnatxa blanca. Vín dagsins er 100% Xarel·lo sem kemur af rúmlega 50 ára gömlum vínið. Vínið er gerjað í stáltönkum og hefur fengið malólaktíska umbreytingu. Það fékk svo 4 mánaða hvíld í stál- og steyputönkum. Alls voru gerðar um 50.000 flöskur af þessu víni.

Can Sumoi Xarel·lo 2023 hefur miðlungsdjúpan sítrónugulan lit og þægilegan ilm af eplum, perum, apríkósum, sjávarseltu, steinefnum, grasi og suðrænum ávöxtum. Í munni er vínið þurrt, með ríflega miðlungs sýru og létta fyllingu. Eftirbragðið nokkuð þétt og heldur sér vel. 90 stig. Góð kaup (3.995 kr). Njótið með ljósu fuglakjöti, fiskréttum og léttum forréttum.
Robert Parker gefur þessu víni 91 stig. Jancis Robinson gefur 17/20 stig. Notendur Vivino gefa þessu víni 4,0 stjörnur (201 umsögn þegar þetta er skrifað).
