Trapiche Medalla Cabernet Sauvignon 2013

Hingað til hefur manni einkum dottið í hug Malbec þegar argentínsk vín ber á góm, einkum ef það er eitthvað varið í þau.  Staðreyndin er hins vegar sú að argentínskir víngerðarmenn kunna einnig að fara með aðrar þrúgur og ná því besta úr þeim, þó svo að þeirra helstu gersemar rati ekki alltaf á okkar slóðir.  Víngerð Trapiche er ein sú stærsta í Argentínu og vín þeirra tilheyra mismunandi vörulínum, líkt og gengur og gerist (einhverjar 14 mismundandi línur sýnist mér að séu á heimasíðunni).

Vín dagsins

Vín dagsins kemur eins og áður segir frá víngerð Trapiche sem staðsett er í Mendoza-héraði í Argentínu, sem er mikilvægasta vínræktarhéraðið þar í landi.  Hér er um að ræða hreint Cabernet Sauvignon og koma þrúgurnar frá nokkrum mismunandi ekrum í Mendoza.  Vínið er í Crianza-stíl og  fékk að liggja á eikartunnum í 6 mánuði áður en það var svo sett á flöskur.

Trapiche Medalla Cabernet Sauvignon 2013 er kirsuberjarautt á lit, með byrjandi þroska, og ágæta dýpt.  Í nefinu finnur maður sólber, leður, pipar, brómber, plómur, lyng og ögn af eik.  Í munni eru góð tannín, fín sýra ogþéttur ávöxtur. Leður, sólber, plómur, krydd, eik og örlítið tóbak. Mjög góð kaup (2.999 kr). Á eftir 3-5 ár á toppnum. Fer vel með öllum steikum, góðum ostum eða bara eitt og sér.  90 stig.

Hvað segja hinir?

Steingrímur í vinotek.is gefur 4,5 stjörnur.

Notendur Vivino gefa 4.0 í einkunn (473 umsagnir).

Vinir á Facebook