Mont Marcal Cava Brut Reserva

Síðasta freyðivínið sem fjallað er um í þessari maraþonumfjöllun um freyðivínin í Vínbúðunum er enn eitt Cava frá Spáni.  Það er gert úr hinum hefðbundnu cava-þrúgum xarello, macabeo og parellada, ásamt chardonnay.  Það er orðið algengara að chardonnay sé bætt í cava til að bæta bragð og fyllingu vínsins, og það skilar sér vel í þessu ágæta freyðivíni.
Mont Marcal brut cavaMont Marcal Cava Brut Reserva er ljósgullið á lit og freyðir vel.  Í nefinu finnur maður daufa eikartóna, sítrusbörk, epli og smá ananas.  Í munni er vínið þurrt, freyðir vel með góða kolsýru, sítrus-, eikar- og eplatónar, með ágæta fyllingu.  Góð kaup (1.999 kr).

Vínsíðan

Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]

Vinir á Facebook