Í heimi þar sem mörg vínhús keppast við nútímalega tækni, notkun eikartunna og hraða útgáfu stendur eitt hús nánast utan tímans. Í bænum Haro, í hjarta Rioja, hefur arfleifð Rafael López de Heredia haldist órofin frá 19. öld. Þar er Tondonia ekki bara víngerð – heldur líka heimspeki. Saga Tondonia er í raun saga nútímavæðingar Rioja – og jafnframt saga andstöðu við of hraða nútímavæðingu.
Upphafið – Bordeaux í Rioja
Þegar Rafael López de Heredia kom til Haro á áttunda áratug 19. aldar var Rioja enn að mestu staðbundið vínsvæði. Vín voru framleidd til neyslu innanlands og lítið hugsað um langa geymslu eða útflutning. Á sama tíma hafði phylloxera-faraldurinn lagt vínekrur Bordeaux í rúst. Franskir víngerðarmenn og kaupmenn leituðu nýrra svæða þar sem hægt væri að framleiða vín í svipuðum stíl og þeir þekktu að heiman.
Rafael López de Heredia sá tækifæri þar sem aðrir sáu óvissu. Hann tileinkaði sér franskar aðferðir – strangt val á þrúgum, hreinsun og stöðlun í kjöllurum og ekki síst kerfisbundinn eikarþroska. Árið 1877 stofnaði hann vínhúsið sem með tímanum varð eitt það virtasta í Rioja.
Árið 1913 festi fjölskyldan kaup á víngarðinum Viña Tondonia, staðsettum við bugðu Ebro-árinnar. Nafnið „Tondonia“ er dregið af staðarnafni á landinu og varð fljótt tákn fyrir flaggskip hússins. Frá upphafi var markmiðið að framleiða vín sem gætu staðist samanburð við bestu vín Frakklands – ekki með því að herma eftir þeim, heldur með því að nýta sér terroir Rioja Alta og sameina það franskri agaðri vinnubrögðum.
Vínhúsið hefur alla tíð verið í eigu og rekstri sömu fjölskyldu. Í gegnum spænska borgarastyrjöld, efnahagskreppur, tæknibyltingar og tískubreytingar í víngerð hefur López de Heredia haldið fast í sínar aðferðir. Þegar aðrir framleiðendur í Rioja tóku upp nýjar franskar eikartunnur, styttri þroskun og kraftmeiri útdrátt á níunda og tíunda áratug 20. aldar, hélt Tondonia sig við gömlu amerísku eikina, hæga oxun og langa bið.
Kjallarar López de Heredia í Barrio de la Estación í Haro eru í sjálfu sér sögulegt minnismerki og þar liggja þúsundir tunna í miklum neðanjarðargöngum. Vínhúsið framleiðir enn sínar eigin eikartunnur – ferli sem fá vínhús í heiminum stunda í dag. Í vínkjöllurum Tondonia í Haro eru um það bil 12.000 eikartunnur í notkun. Þetta er óvenjulegur fjöldi miðað við að vínhúsið er ekki stórt á alþjóðlegan mælikvarða. Ástæðan liggur í framleiðslustílnum. Tondonia þroskar vín sín miklu lengur í tunnu en flest önnur vínhús í Rioja. Gran Reserva-vínin geta legið í eik í 6–10 ár, stundum lengur, áður en þau fara á flösku. Til samanburðar er lágmarkskrafa fyrir Gran Reserva í Rioja 24 mánuðir í tunnu – Tondonia fer langt fram úr því.
Önnur sérstaða er að húsið framleiðir sínar eigin tunnur í eigin smíðaverkstæði. Flestar eru úr amerískri eik, yfirleitt 225 lítra (Bordeaux-stærð), og eru notaðar í áratugi. Þeim eru viðhaldið og þær endurnýjaðar reglulega en ekki skipt út á hraðri hringrás eins og algengt er hjá mörgum nútímaframleiðendum.
Sagan er því ekki aðeins saga um stofnun vínhúss, heldur saga um viðhorf. Tondonia trúir því að tíminn sé mikilvægasta innihaldsefnið. Í meira en 140 ár hefur fjölskyldan hafnað skammtímalausnum og fylgt sinni sýn: að Rioja geti, með þolinmæði og aga, skapað vín sem lifa kynslóðir. Það er þessi stöðugleiki – þessi þrjóska jafnvel – sem hefur fært Tondonia þá sérstöðu sem vínhúsið hefur í Rioja.
Tondonia Gran Reserva
Gran Reserva-vín Tondonia eru meðal langlífustu vína Spánar. Þau eru flaggskip López de Heredia, eru aðeins gerð þegar gæði uppskerunnar eru nægileg og fá miklu lengri þroskatíma – bæði í tunnu og flösku – áður en þau koma á markað. Hér sker López de Heredia sig aftur frá öðrum framleiðendum í Rioja (og á Spáni) með því að gera Gran Reserva rauðvín, hvítvín og rósavín.
Ég ákvað að skrifa um öll þessi vín saman í einni færslu í stað þess að skrifa 3 færslur, því það fer betur að fjalla um þau sem hluta af einni heild.
Tondonia Tinto Gran Reserva

James Suckling gefur þessu víni 98 stig og Robert Parker gefur því 100 stig! Notendur Vivino gefa þessu víni 4,5 stjörnur (158 umsagnir þegar þetta er skrifað).
Tondonia Tinto Gran Reserva 2004 er að mestu gert úr þrúgunni Tempranillo (75%) ásamt Garnacha (15%), Graciano (10%) og Mazuelo (10%). Vínið var látið liggja í eikartunnum í 14 ár áður en það var sett á flöskur í Nóvember 2018. Alls voru gerðar 24.000 flöskur af þessu víni og þær fengu að hvíla 6 ár til viðbótar í kjallara Tondonia áður en vínið var sett á markað. Vínið hefur djúpan ryðrauðan lit. Í nefinu er þroskaður ilmur af kirsuberjum, vanillu, sveppum (trufflum?), tóbaki, leðri, kókos, joði og þurrkuðum kryddjurtum. Í munni er vín þurrt, með góða sýru, silkimjúk tannín og góða fyllingu. Eftirbragðið er mjúkt og heldur sér mjög lengi. 96 stig. Víninu var umhellt 1 klst áður en það var smakkað, en 3 klukkustundum síðar var það enn að opnast! Vínið steinlá með lambalundum en gengur eflaust vel með flestöllum kjötréttum. Þetta vín fæst í vínbúð sante.is (23.330 kr.).
Tondonia Blanco Gran Reserva

Gran Reserva hvítvín Tondonia er eitt merkilegasta hvítvín Spánar. Það er að mestu gert úr þrúgunni Viura ásamt smá Malvasía, er þroskað árum saman í eik og síðan lengi á flösku.
Tondonia Blanco Gran Reserva 2004 er gert úr Viura (90%) ásamt Malvasia (10%). Vínið var fyrst látið hvíla í stórum eikarámum áður en það var sett í eikartunnur . Þar fékk vínið að hvíla í 10 ár áður en það var svo aftur sett í eikarámur. Vínið var svo sett á flöskur í nóvember 2018. Alls voru gerðar 10.000 flöskur af þessu víni. Vínið hefur djúpan, fagurgulan lit og þéttan, þroskaðan ilm af hunangi, hnetum, appelsínuberki, grösum og ögn af steinolíu. Í munni er vínið þurrt, með miðlungs sýru og góða fyllingu. Eftirbragðið er þétt og heldur sér lengi. 95 stig. Fer vel með ostum og e.t.v. saltfiskréttum. Vínið fæst í vínbúð sante.is (22.220 kr)
Robert Parker gefur þessu víni 100 stig og James Suckling gefur því 99 stig. Notendur Vivino gefa þessu víni 4,4 stjörnur (169 umsagnir þegar þetta er skrifað).
Tondonia Rosado Gran Reserva

Gran Reserva rósavínið frá Tondonia er eitt sjaldgæfasta rósavín heims. Það er framleitt með sömu alvöru og rauðvínin og þroskað árum saman í eik áður en það fer á flösku. Líkt og hin Gran Reserva-vínin frá Tondonia er þetta vín bara gert í bestu árgöngum og næsti árgangur er líklega 2016-árangur.
Tondonia Rosado Gran Reserva 2012 er gert úr þrúgunum Garnacho (60%), Tempranillo (30%) og Viura (10%). Vínið var látið þroskast í eikartunnum í 4 ár áður en það var sett á flöskur í apríl 2018. Alls voru gerðar 15.000 flöskur af þessu víni. Vínið hefur fallegan og djúpan koparlit. Í nefinu er flókinn ilmur af þurrkuðum appelsínum, möndlum, karamellu, rifsberjum, hindberjum, fíkjum og smá kókos. Í munni er vínið þurrt, með ríflega miðlungs sýru og góða fyllingu – nánast eins og Oloros sherry. 97 stig. Eftirbragðið er langt og safaríkt. Þetta er ekki sumarlegt svaladrykkjarvín heldur alvöru matarvín – eitt besta rósavín sem ég hef prófað. Ef þið komist yfir flösku af þessu víni getið þið prófað það með svínakjöti eða jafnvel indverskum mat (þó ekki of bragðsterkum).
Robert Parker gefur þessu víni 96 stig og James Suckling gefur því 97 stig. Notendur Vivino gefa þessu víni 4,3 stjörnur (562 umsagnir þegar þetta er skrifað)

