Gyllta Glasið 2025 – seinni hluti

Nú er nýlokið keppninni um Gyllta Glasið 2025 sem var að vanda undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Verðflokkur vína í keppni í ár er frá 2.990 kr til 5.000 kr og völdu vínbirgjar vínin til í þessa keppni. Í þessum seinni hluta keppninnar voru tekin fyrir vín frá “Gamla heiminum”, þ.e. norðan við miðbaug fyrir utan Norður Ameríku sem var tekin með vorsmakkinu.

Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Reykjavík Natura sunnudagin 2. nóvember sl og eigum við í Vínþjónasamtökunum þeirra allra bestu þakkir fyrir aðstoðina.

Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna ásamt sérstakri aðstoð frá vel völdu fagfólki og eiga þau þakkir fyrir að standa að stærstu blindmökkum sem fram fer á Íslandi ár hvert.

Alls voru 85 vín send inn í þennan hluta kepnninngar. Fimm hvítvín og tíu rauðvín hlutu Gyllta glasið 2025 samkvæmt hlutföllum sem skiluðu sér. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin. 

Verðlaunavínin

Hvítvín:

Schola Sarmenti Ambáce Fiano Chardonnay 2024, 3.497 kr (sérpöntun)
Gustave Lorentz Riesling Reserve 2023, 2.990 kr
Hugel Gentil 2023, 2.999 kr
Louis Jadot Couvent des Jacobins Chardonnay 2023, 3.999 kr
Willm Riesling Reserve 2024, 2.999kr

Rauðvín:

Allegrini Corte Ciara Ripasso la Groletta 2023, 3.790 kr
Baron de Ley „Finca Monasterio“ 2022, 4.599 kr
Carlos Serres Gran Reserva 2017, 3.886 kr
Castemondo Valpolicella Ripasso Superiore 2022, 2.999 kr
E. Guigal Cotes du Rhone 2022, 3.299 kr
Muriel Reserva 2019, 3.199 kr
Schola Sarmenti Cubardi Primitivo 2022, 4.990 kr
Torres Purgatori 2022, 4.990 kr
Vidal Fleury Cotes du Rhone 2022, 2.999 kr
Zenato Valpolicella Superiore 2021, 2.999 kr

Vínþjónasamtökin vilja þakka sérstaklega öllum dómurum og birgjum fyrir frábæra þáttöku og óskum við sigurvegurum til hamingju.

f.h. Vínþjónasamtaka Íslands
Tolli

Gyllta Glasið 20 ára.

Síðan 2005 hafa Vínþjónasamtök Íslands veitt Gyllta glasið ár hvert.  Keppnin fer þannig fram að birgjar senda inn bæði rauðvín, hvítvín og rósavín til keppni í fyrirfram ákveðnum verðflokki. Vínin eru síðan smökkuð blint og þeim gefin einkunn af dómnefnd, sem í sitja helstu vínþjónar og vínsérfræðingar landsins.

Vinir á Facebook