Cantina Santadi Terre Brune Carignano del Sulcis Superiore 2020

Þriðja vínið frá Cantina Santadi sem nú er fáanlegt í vínbúðunum er sjálft flaggskip Santadi – Terre Brune. Vínið er að mestu gert úr Carignano en inniheldur um 5% af þrúgunni Bovaleddu (á Spáni er þessi þrúga þekkt undir nafninu Graciano). Vín er látið hvíla í 18 mánuði á nýjum tunnum úr franskri eik og svo 12 mánuði í flösku áður en það fer í sölu. Árlega eru gerðar um 100.000 flöskur af þessu víni.

Cantina Santadi Terre Brune Carignano del Sulcis Superiore 2020 hefur djúpan rúbínrauðan lit og þéttan ilm af svörtum kirsuberjum, plómum, tóbaki, eik, súkkulaði, leðri, bláberjum, vanillum og kaffi. Vínið er þurrt, hefur góða fyllingu, ríflega miðlungs sýru og kröftug en fínleg tannín. Eftirbragðið heldur sér vel og lengi og þar má finna tóbak, súkkulaði, kaffi og krydd. 93 stig. Góð kaup (8.325 kr). Vínið er tilbúið til neyslu en spjarar án ef mjög vel næstu 10-15 árin. Þetta er vín fyrir góðar steikur – naut, lamb og léttari villibráð, en einnig með ítölskum pylsum, hörðum ostum og góðu ragú. Sýnishorn frá innflytjanda.

Eymar í Vínsíðunum gefur þessu víni 95 stig. Notendur Vivino gefa víninu 4,2 stjörnur (89 umsagnir þegar þetta er skrifað). James Suckling gefur 93 stig.

Cantina Santadi Terre Brune Carignano del Sulcis Superiore 2020
Cantina Santadi Terre Brune Carignano del Sulcis Superiore 2020 er vín fyrir góðar steikur - naut, lamb eða léttari villibráð.
4.5
93 stig
Hvar fæst vínið?

Vinir á Facebook