Fyrir skömmu fjallaði ég um hið ágæta Rocca Rubia frá Cantina Santadi á Sardiníu. Vínhús Santadi hefur verið í örum vexti og tekið miklum framförum eftir að Giacomo Tachis var fenginn til ráðgjafar um víngerðina. Tachis öðlaðist frægð í vínheiminum fyrir aðkomu sína að hinu goðsagnakennda Sassicaia, sem er eitt þekktasta vínið frá Ítalíu. Tachis ráðlagði aukna áherslu á þrúguna Carignano, sem er mikið ræktuð á Sardiníu. Carignano er að mestu ræktuð í Frakklandi og á Spáni (þar sem hún er líka þekkt sem Mazuelo, Samsó og Cariñena. Til að flækja þessi nafnamál frekar þá er franska þrúgan Cinsault einnig kölluð Samsó á Spáni, en það er annar handleggur…
Vín dagsins er hreint Carignano, sem að lokinni gerjun er látið þroskast í sementstönkum, en sú aðferð viðheldur meiri ferskleika en eikarþroskun gerir, auk þess sem ávöxturinn heldur sér betur.

Cantina Santadi Grotta Rossa Carignano del Sulcis 2022 hefur miðlungsdjúpan rúbínrauðan lit og góðan, jarðvegskenndan ilm af sólberjum, krækiberjum, fjólum, pipar og kirsuberjum. Í munni er vínið þurrt, með ríflega miðlungs sýru, miðlungstannín og ágæta fylling. Eftirbragðið heldur sér nokkuð vel og þar má finna sömu dökku ber og í nefinu, ásamt kirsuberjum og fjólum. 88 stig. Frábær kaup (2.999 kr). Tilvalið með grilluðu lambi, nauti og léttari villibráð. Sýnishorn frá innflytjanda.
Notendur Vivino gefa þessu víni 3,6 stjörnur (96 umsagnir þegar þetta er skrifað). Eymar á Vínsíðunum gefur 88 stig. James Suckling gefur því 92 stig og Wine Enthusiast gefur 90 stig.
