Rauður Rómeó

Sagan um Rómeó og Júlíu gerist, líkt og allir vita, í Veróna á Ítalíu.  Frá svipuðum slóðum (Valpolicella) kemur vínið Rómeó, gert úr hefðbundum þrúgum héraðsins (Corvina, Rondinella og Molinara).
Tommasi Valpolicella RomeoTommasi Valpolicello Romeo 2014 er ljóskirsuberjarautt á lit, ungt og með litla dýpt.  Í nefinu finnur maður hindber, mynta og hvítan pipar.  Í munni eru áberandi tannín, fullmikil sýra og vínið er frekar stramt og þurrt.  Hindberin ná þó að gægjast í gegnum þessa miklu sýru og gerir eftirbragðið þægilegra.  Líklega er hægt að gera betri kaup á þessu verði (1.899 kr).

Vínsíðan

Smelltu hér til að gefa einkunn
[Alls: 0 Meðaltal: 0]

Vinir á Facebook