Vínbúð í Spönginni lokað

Af www.mbl.is

„Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur ákveðið  að loka Vínbúðinni í Spönginni og tekur lokunin gildi frá og með 19. janúar. Allir fastráðnir starfsmenn munu halda störfum sínum og flytjast yfir í aðrar verslanir. Engar aðrar lokanir eru fyrirhugaðar, að því er kemur fram á vef fyrirtækisins.

Þar segir, að megin ástæða þess að Vínbúðinni í Spönginni sé lokað sé að rekstur hennar hafi verið undir væntingum síðustu árin. Leigusamningur um húsnæðið rann út um áramótin og var ákveðið að framlengja hann ekki. Húsnæðið var orðið óhentugt miðað við þá þjónustu og vöruúrval sem viðskiptavinir óskuðu eftir.

ÁTVR segir, að leitað verði eftir hentugra húsnæði á svæðinu þegar aðstæður leyfa. „

Vinir á Facebook